Góðan dag, góðan dag, glens og grín það er mitt fag...
Neibb ég var ekki að horfa á afa!
Í gær var ég lasin! Og hvað gerir maður á lasin-dögum? Jú, ekki
neitt og ekki neitt!
Ég var semsagt lasin heima hjá mér að gera ekki neitt í gær þegar
að fólk með sirry byrjaði í sjónvarpinu á eftir americas next top
medel svo jú það varð úr að ég sá þennan þátt! (voða léleg afsökun
fyrir að horfa á sirry

) Umræðu efnir þáttarins var: Konur sem
blogguðu af sér bumbuna!! -HA???

*sagan er búin*
Margt er skrýtið í hinni víðu veröld!!!
Núna hef ég tekið þá ákvörðun að mæta ekkert meira í stæ303! ég
held að ég hafi drullu fallið á prófinu og svo er víst allaf svo
gaman þegar ég mæti ekki!! HA.. Olli og Hafrún og Þorri!!!
*ógeðslega ógeðslega móðguð**
Ég hef samt svolædið verið að pæla í sumu fólki! Stundum pæli ég í
einhverri manneskju í nokkra daga og svo pæli ég í annari kannski
bara í klukkatíma(þá er hann/hún mjög auðskilin og ég þarf ekki að
pæla lengi til að ég skilji bara manneskjuna strax) Allavega.. þá
hef ég verið að pæla svolítið í honum Olla kallinum núna.. í nokkuð
marga daga.. eila alveg síðan að sumarfríið var búið!!! Hann er
alveg óskiljanlegur!!! Pæliði aðeins í þessu.. honum dettur
"brandari" í hug um allt sem hann segir og einhver annar segir!
Dæmi: ummm... ohh dem ég man ekki neitt dæmi... jú!
Kristín: ég var að horfa á roudtrip í gær
olli: kanski Gulrót-trip
*Ha-ha-ha.. voða fyndið* og svo má þorri auðvitað ekki vera minni
maður:
Kristín: mér var einusinni hent út úr tíma fyrir
að vera með gulrætur
Þorri: þú hefur allavega ekki náð að festa rætur
þar!
Ég held að næst fari ég að pæla í Þorra.. Held að hann sé flóknari
en hann sýnist
Hætt að bulla!
Olli þú ert æði
Þorri þú ert líka æði
Hafrún það er eins gott að það verði gaman í stæ á morgun
Baddi ég elska þig
Kristín